Innlent

Ölduspá og viðvörunarkerfi í Reynisfjöru

Garðar Örn Úlfarsson og Svavar Hávarðsson skrifa
Stöðugt leika ferðamenn sér að eldinum, en nýtt viðvörunarkerfi gæti bætt ástandið.
Stöðugt leika ferðamenn sér að eldinum, en nýtt viðvörunarkerfi gæti bætt ástandið. vísir/vilhelm
Þróuð verður ölduspá og viðvörunarkerfi fyrir ferðamannafjörurnar á Suðurlandi; Reynisfjöru og Kirkjufjöru. Þetta er ákvörðun Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ráðherra ferðamála, og samkvæmt tillögu vinnuhóps Stjórnstöðvar ferðamála um brýnar úrbætur í öryggismálum.

Markmiðið með verkefninu er að geta spáð um það með nokkurra daga fyrirvara hvenær hættulegar aðstæður skapast, svo að hægt verði að vara sérstaklega við því og mögulega auka gæslu, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Til að þetta sé unnt þarf að þróa spákerfi, framkvæma dýptarmælingar og setja upp ýmiss konar búnað, og er þess vænst að hægt verði að taka kerfið í notkun strax á þessu ári.

Ráðherra hefur óskað formlega eftir því við Ferðamálastofu að hún gangi til samninga við Vegagerðina um framkvæmd á verkefninu. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á rúmar 20 milljónir króna og hefur ráðherra ákveðið að nýta í verkefnið fé sem lagt var til hliðar af ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á síðasta ári í þágu öryggismála.

Ráðherra kynnir verkefnið formlega á blaðamannafundi í dag þar sem einnig verður greint frá rúmlega 600 milljóna króna úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til 58 verkefna víðsvegar um landið.

Fréttablaðið fjallaði um málið í byrjun febrúar, og talaði þá við Sigurð Sigurðarson, strandverkfræðing hjá Vegagerðinni, en hugmyndin er hans.

Víðir Reynisson, lögreglufulltrúi á Suðurlandi, segir lögregluna hafa verið með nokkrar hugmyndir varðandi öryggi í Reynisfjöru í samstarfi við mismunandi aðila. Ein þeirra sé að nota öldulíkan Vegagerðarinnar til að spá um hættulegar öldur.

„Hugmyndin er að það liggi alltaf fyrir spá einhverja daga fram í tímann. Hugmyndin er líka að vera með einhver ljósamerki á staðnum þá daga sem aðstæður eru verri og full ástæða til að vera með blikkljós og fána eða eitthvað slíkt,“ segir Víðir.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×