Innlent

Öld olíunnar liðin

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Markmið bandalagsins er að halda hlýnun innan við 1,5 gráður.
Markmið bandalagsins er að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Vísir
Öld olíunnar er liðin með nýju loftlagssamkomulagi. Þetta segir sérfræðingur í loftlagsmálum og að margar þjóðir muni reyna að skipta yfir í endurnýtanlega orku. Hann segir Íslendinga eiga að vera í fararbroddi í kolefnisjöfnun og vera fyrirmynd annarra þjóð.

Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa fagnað sögulegu samkomulagi sem náðist á loftlagsráðstefnunni í París í gær. Samningurinn sem samþykktur var af 195 þjóðum felur í sér að koma á veg fyrir að hitastig á jörðinni hækki um meira en 2 gráður. Jafnframt  á að reyna að tryggja að hitastig hækki ekki um meira en um 1,5  gráðu. Þá á útblástur gróðurhúsalofttegunda að ná hámarki sem fyrst og í framhaldinu á að draga hratt úr útblæstri.

Samningurinn hefur það í för með sér að dregið verður verulega úr notkun jarðefnaeldsneyta líkt og olíu og kolum. „Ef þetta samkomulag gengur eftir þá er öld olíu liðin. Hún mun hætta. Menn munu auðvitað alltaf nýta olíu þó ekki væri nema bara í allskonar svona sér smurningu og slíkt,“ segir Halldór Björnsson sérfræðingur í loftlagsmálum hjá Veðurstofu Íslands.

Hann segir að endurnýtanlegir orkugjafar verði nýttir í stað olíu og kola. „Margar þjóðir munu reyna að skipta yfir í endurvinnanlega orku. Við í sjálfu sér erum búin að því fyrir þó nokkuð löngu síðan og erum með megnið af okkar húshitun í jarðhita og mengið af okkar raforku í vatnsorku og við í sjálfu sér getum þá horft til annarra þátta. Það er nýta raforkuna betur. Rafvæðing bílaflotans og svo slíkt og síðan bindingaraðgerðir. Það er hægt að draga verulega úr losun með því að hérna endurheimta votlendið. Það er hægt að auka bindingu bæði með því að endurheimta örfoka land með því sem við köllum landrækt og síðan líka með skógrækt,“ segir Halldór.

Hann segir Íslendinga eiga að vera í fararbroddi í kolefnisjöfnun og vera fyrirmynd annarra þjóð. „Það eru viss tækifæri fyrir Íslendinga ef við yrðum á undan öðrum þjóðum í því að kolefnisjafna okkur,“ segir Halldór. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×