Viðskipti innlent

Ólavía og Óliver innkalla barnabók

Atli Ísleifsson skrifar
Varan hefur verið í sölu frá árinu 2011 og hafa tólf eintök verið seld.
Varan hefur verið í sölu frá árinu 2011 og hafa tólf eintök verið seld. Mynd/Neytendastofa
Ólavía og Óliver hafa innkallað Heimess barnabók með áfastri snuðkeðju. Ástæða innköllunarinnar er köfnunarhætta þar sem keðjan geti fest í koki barns.

Í frétt á vef Neytendastofu segir að varan hafi verið í sölu frá árinu 2011 og hafa tólf eintök verið seld. „Hafir þú keypt þessa vöru í Ólavíu og Ólíver biðjum við þig vinsamlega að skila vörunni í verslunina þar sem þú getur fengið endurgreitt.

Ekki er vitað hvort varan hafi borist til landsins með öðrum leiðum en vill Neytendastofa hvetja þá neytendur sem eiga þessa vöru að hætta notkun hennar strax og tilkynna stofnuninni ef varan hefur verið keypt hér á landi á netfangið edda@neytendastofa.is eða postur@neytendastofa.is,“ segir í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×