Innlent

Ólafur Þór kominn í leitarnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólaf Þór Ólafsson, 27 ára
Ólaf Þór Ólafsson, 27 ára
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Þór Ólafssyni, 27 ára. Hann er klæddur í svar bláum víðum íþróttabuxum, grárri hettupeysu og opnum sandölum.

Hann er 186 sm. á hæð og um 100 kg. að þyngd. Hann er með dökkt skegg, rakað hár og með hefti eftir aðgerð hægra megin á höfði. Hann er illa áttaður eftir höfuðmeiðsl.

Síðast sást til hans á Grensásdeild, endurhæfingadeild Landspítala, um kl. 12:50. Lögreglan hefur leitað eftir aðstoð Landsbjargar við leit og leitarflokkar frá þeim eru við leit á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs Þórs eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Uppfært klukkan 16:02

Ólafur Þór er fundinn. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×