Handbolti

Ólafur skoraði fjögur mörk í úrslitakeppninni

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. vísir/daníel
Ólafur Andrés Guðmundsson og félagar í sænska liðinu Kristianstad byrjuðu vel í úrslitakeppninni í dag er liðið vann stórsigur á Hammarby í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum.

Lokatölur 27-18 eftir að Kristianstad hafði leitt með þrem mörkum í hálfleik, 12-9.

Ólafur Andrés öflugur sem fyrr og skoraði fjögur mörk. Hammarby ætti ekki að flækjast mikið fyrir Kristianstad sem varð í öðru sæti deildarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×