Handbolti

Ólafur skoraði fjögur í fyrsta leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Gústafsson skoraði fjögur mörk fyrir Aalborg í gær.
Ólafur Gústafsson skoraði fjögur mörk fyrir Aalborg í gær. Vísir/Getty
Ólafur Gústafsson lék sinn fyrsta leik með Aalborg Håndbold í gær. Um var að ræða æfingaleik gegn Skive fH.

Aalborg vann öruggan sigur, 36-24, en staðan í hálfleik var 17-12.

Ólafur, sem gekk í raðir Aalborg frá Flensburg, skoraði fjögur mörk í leiknum, en Morten Slundt var markahæstur með sjö mörk. Norðmaðurinn Sander Sagosen kom næstur með sex mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×