Innlent

Ólafur Ragnar um eiturlyfjavandann: Einfaldar aðferðir duga best

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Mynd/Stefán
Ólafur Ragnar Grímsson forseti segir ekki mjög flókið verk að uppræta eiturlyfjavandann. Forsetinn er staddur á Írlandi þar sem hann tók þátt í ráðstefnu sem bar yfirskriftina „Evrópskar borgir gegn eiturlyfjum" en hann fékk sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni fyrir vel unnin störf í þágu ungmenna.

Í máli hans kom fram að aukin evrópusamvinna og afnám landamæra innan sambandsins hafi haft ýmsa góða kosti í för með sér, en hann segir ennfremur að þetta hafi komið sér vel fyrir eiturlyfjasala sem hafi getað breitt úr sér um álfuna fyrir vikið.

Blaðið Irish Times hefur eftir forsetanum að eina leiðin til að uppræta eiturlyfjavandann sé að gera það í nærsamfélaginu, ekki á landsvísu. Það sé ekki mjög flókið mál. „Eina leiðin er að vinna með unga fólkinu sjálfu, að byggja upp sjálfstraust þeirra þannig að þau verði ekki fórnarlömb," segir Ólafur.

Hann vitnaði til rannsókna sem hann hafi komið að þegar hann var prófessor sem hafi sýnt að einfaldar aðferðir dugi vel í baráttunni.

Mikilvægt sé að fjölskyldan eyði að minnsta kosti klukkutíma saman á hverjum degi, að ungmenni taki þátt í íþróttum og þá virki vel að biðja börn um að byrja ekki að neyta áfengis fyrr en þau séu orðin átján ára.

Sé þessum einföldu reglum fylgt eftir eru minna en eitt prósent líkur á því að ungmenni verði fíkninni að bráð. Í blaðinu segir að þessa aðferð hafi forsetinn kynnt í gegnum samtökin auk þess sem farið sé að beita henni í Suður Ameríku.

Í ræðu sinni ræddi Ólafur einnig um efnahagsvandann sem Íslendingar hefðu glímt við. Blaðamaðurinn lýsir því hvernig Íslendingar hafi neitað að styðja við föllnu bankana og segir forsetinn að lykillinn að því hversu vel hafi gengið sé sá að Íslendingar hafi skilgreint vandann sem „lýðræðislegan, en ekki efnahagslegan."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×