Ólafur Ragnar húðskammaði nágrannaþjóðir í hádegisverði 12. nóvember 2008 09:00 MYND/Hrönn
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gagnrýndi nágrannaþjóðirnar Svíþjóð, Danmörku og Bretland fyrir að snúa baki við Íslendingum. Þetta mun hann hafa gert í hádegisverði með erlendum erindrekum í Reykjavík á föstudag eftir því sem fram kemur í norrænum miðlum. Á vef norska ríkisútvarpsins segir að erindrekarnir hafi vart trúað sínum eigin eyrum enda hafi forsetinn komið fram með móðgandi ásakanir á hendur Bretum. Vísað er til minnisblaðs norskra yfirvalda um fundinn og bent á að fulltrúar Svíþjóðar og Danmerkur hafi setið hann. Mun Ólafur Ragnar hafa hótað því að leita nýrra bandamanna þar sem núverandi bandamenn hefðu svikið landið. Þá mun forsetinn hafa viðrað þá hugmynd að Rússum yrði boðin aðstaða í gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli og mun sendiherra Rússlands, sem sat hádegisverðarfundinn, hafa verið hissa en brosað og gefið þannig til kynna að Rússar hefðu ekki þörf fyrir það. Þá segir einnig í frétt norska ríkisútvarpsins að Ólafur Ragnar hafi einungis hrósað Norðmönnum og Færeyingum fyrir að hafa staðið við bakið á Íslendingum í fjármálakreppunni. Fréttinni lýkur á þeirri staðhæfingu að forsetinn hafi áður verið í systurflokki Sósíalíska vinstriflokksins og hann hafi engin formleg völd í utanríkismálum.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira