Íslenski boltinn

Ólafur Páll aftur í Krikann

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heimir og Ólafur Páll sameinaðir á ný.
Heimir og Ólafur Páll sameinaðir á ný. mynd/fh
Ólafur Páll Snorrason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara FH.

Ólafur Páll tekur við starfinu af Guðlaugi Baldurssyni sem hefur aðstoðað Heimi Guðjónsson frá árinu 2011.

Ólafur Páll þekkir vel til hjá FH en hann lék lengi með liðinu og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með því.

Undanfarin tvö ár hefur Ólafur Páll verið spilandi aðstoðarþjálfari hjá Fjölni, uppeldisfélagi sínu.


Tengdar fréttir

Guðlaugur hættur hjá FH

Guðlaugur Baldursson verður ekki áfram aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá FH og Ólafur Páll Snorrason ku vera á leið aftur í Hafnarfjörðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×