Handbolti

Ólafur markahæstur í sigri Kristianstad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur er fyrirliði Kristianstad.
Ólafur er fyrirliði Kristianstad. vísir/getty
Ólafur Guðmundsson skoraði fimm mörk þegar Kristianstad vann 23-20 sigur á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þetta var annar sigur Kristianstad í röð en liðið er með 33 stig í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir toppliði Alingsås.

Auk þess að skora fimm mörk gaf Ólafur þrjár stoðsendingar í leiknum.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk og Gunnar Steinn Jónsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í liði Kristianstad sem mætir Rhein-Neckar Löwen í Íslendingaslag í Meistaradeild Evrópu um helgina.

Leó Snær Pétursson var ekki meðal á markaskorara hjá Malmö sem er í 4. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×