Golf

Ólafur lék á tveimur höggum undir pari

Ingvi Þór Sæmunsdson skrifar
Ólafur stendur vel að vígi í Danmörku.
Ólafur stendur vel að vígi í Danmörku. Vísir/Stefán
Ólafur Björn Loftsson, Nesklúbbnum, er sem stendur á meðal tíu efstu manna á lokaúrtökumótinu fyrir Nordic Ecco atvinnumótaröðina.

Mótið fer fram á Skjoldernæsholm vellinum á Sjálandi, en 50 efstu keppendurnir komast í gegnum niðurskurðinn eftir annan keppnisdag.

Ólafur lék á tveimur höggum undir pari á öðrum keppnisdeginum, en hann fékk alls þrjá fugla og einn skolla á hringnum í dag. Hann hefur leikið samtals á þremur höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×