Íslenski boltinn

Ólafur Karl og Hafsteinn í slæmu samstuði | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Þeir Ólafur Karl Finsen og Hafsteinn Briem, leikmenn Stjörnunnar og ÍBV, skullu saman í leik liðanna í kvöld og blæddi vel úr þeim báðum eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Báðir stóðu þó upp eftir samstuðið en Ólafur Karl var tekinn af velli skömmu síðar. Stjarnan vann leikinn örugglega, 3-0.

„Það blæddi nokkuð mikið en þetta er ekkert alvarlegt,“ sagði Ólafur Karl við Vísi í kvöld. „Það þurfti að sauma 5-6 spor en ég fékk ekki heilahristing eða neitt slíkt.“

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, tók myndirnar sem fylgja fréttinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×