Fótbolti

Ólafur Ingi: Viljum einmitt spila við lið eins og Argentínu

Dagur Lárusson skrifar
Ólafur Ingi
Ólafur Ingi vísir/getty
Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður íslenska landsliðsins, var í viðtali við Goal í vikunni þar sem hann var spurður í heimsmeistaramótið næsta sumar. Ummælin eru höfð eftir honum á vefsíðu FIFA.

Ólafur Ingi segist vera ánægður með riðilinn sem að Íslands spilar í á mótinu en Íslands spilar við Argentínu, Króatíu og Nígeríu.

„Ég er búinn að sjá mikið af blöðum búin að skrifa um það hversu óheppnir við erum að lenda í svona erfiðum riðli en það er einmitt það sem við viljum.“

„Við viljum spila við Argentínu, þvílíkt lið til þess að spila við í fyrsta leiknum á fyrsta heimsmeistaramótinu okkar. Að spila gegn Messi og öllu argentínska liðinu verður frábær lífsreynsla.“


Tengdar fréttir

Rómantískt að fá Argentínu

Fyrsti leikur Íslands á HM verður á móti Lionel Messi og félögum í Moskvu 16. júní. Leiðir Íslendinga og Króata liggja saman enn á ný og þá mæta íslensku strákarnir fyrrverandi Afríkumeistaraliði Nígeríu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×