Handbolti

Ólafur hafði betur gegn Atla Ævari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. vísir/daníel
Kristianstad stendur vel að vígi í baráttu sinni gegn Sävehof í úrslitakeppni sænska handboltans eftir útisigur í kvöld.

Lokatölur 29-35 sem þýðir að Kristianstad er komið í 2-0 í undanúrslitaeinvígi liðanna. Kristianstad vantar einn sigur til viðbótar til að komast í úrslitin.

Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði sex mörk í ellefu skotum fyrir Kristianstad.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk fyrir Sävehof.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×