Innlent

Ólafur er hættur hjá Fréttablaðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen er hættur hjá Fréttablaðinu. Ólafur sendi fjölmiðlum tilkynningu þess efnis rétt í þessu. Ólafur hefur starfað sem ritstjóri Fréttablaðsins undanfarin fjögur og hálft ár.

„Ég undirritaður hef falið lögmanni mínum að tilkynna Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra 365 miðla, að ég líti svo á að ráðningarsamningi mínum við 365 miðla hafi verið rift og ég sé óbundinn af honum,“ segir í tilkynningunni frá Ólafi.

„Boð um breytt starf hjá fyrirtækinu, sem átti að fylgja ritstjóratitill, fól engu að síður í sér verulega breytingu á verkefnum mínum, starfsskyldum og ábyrgð. Ráðning tveggja nýrra ritstjóra felur það sama í sér.

Þá hafa fleiri atburðir undanfarinna daga á fréttastofu 365, sem ég get ekki tjáð mig frekar um vegna trúnaðar, orðið til þess að ég get ekki litið öðruvísi á en að ætlunin sé að þrengja að sjálfstæði mínu sem ritstjóra, sem kveðið er á um í siðareglum félagsins.

Af þessu leiðir að ég mæti ekki til starfa á fréttastofunni á morgun. Ég kveð gott samstarfsfólk með söknuði og þakka því ánægjulega samfylgd.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×