Menning

Ólafur Elíasson hyggst koma fyrir risa gosbrunni í Versölum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Listamaðurinn segir að gosbrunnurinn verði "ótrúlega stór“.
Listamaðurinn segir að gosbrunnurinn verði "ótrúlega stór“. Mynd/Stefán - Getty
Listamaðurinn Ólafur Elíasson hyggst koma fyrir risavöxnum gosbrunni í Versala-höllinni í Frakkklandi í sumar. Ólafur segir að gosbrunnurinn verði „ótrúlega hár“ en hann mun einnig umbreyta tveim trjálundum í grennd við höllina.

Ólafur vill þó ekki gefa upp nákvæmlega hversu hár gosbrunnurinn verður sem  staðsettur verður í hinni gríðarstóru tjörn sem nefnist Grand Canal.

„Ég gæti sagt ykkur hversu hár hann á að vera en ég ætla ekki að gera það vegna þess að áhorfandinn þarf að ákvarða hversu hátt er hátt,“ sagði Ólafur Elíasson í samtali við fréttastofu AFP.

Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að gríðarstór gosbrunnur yrði reistur þegar höllin var byggð á 17. öld en ekki tókst að koma honum í gagnið þrátt fyrir tilraunir þess efnis.

Gosbrunnurinn mun rísa í hinni gríðarstóru tjörn sem sést hér á myndinni.Vísir/Getty
Segir Ólafur að honum muni takast að gera hið ómögulega mögulegt með því að reisa gosbrunninn. Áætlað er að gosbrunnurinn verði það stór að auðveldlega megi sjá hann frá Speglasalnum fræga í höllinni. Þá segir Ólafur að standi maður við Apollo-gosbrunninn muni gosbrunnirinn sem Ólafur hyggst koma fyrir líta út fyrir að vera „ótrúlega stór.“

Ólafur mun einnig umbreyta tveim trjálundum í hallargarðinum. Í öðrum þeirra mun hann dæla þoku eða gufu og í hinum mun hann koma fyrir jarðvegi sem gríðarstór ísjaki úr Grænlandsjökli skyldi eftir sig en ísjakinn var hluti af listaverki Ólafs sem hann setti upp fyrir loftslagsráðstefnuna í París sem fram fór á síðasta ári.

Ólafur segist hafa gengið um höllina og hallargarðinn að nóttu til þess að fá tilfinningu fyrir staðnum í undirbúningu sínum fyrir uppsettningu listaverksins en Ólafur mun einnig setja upp smærri listaverk inn í höllinni sjálfri.

Sýningin mun opna 7. júní næstkomandi og standa til 30. október.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×