Lífið

Ólafur Darri: Starstruck á móti Ben Stiller og Ingvari E.

Bjarki Ármannsson skrifar
„Að fá að leika í Walter Mitty var svo gaman. Ég get ekki lýst því. Að fá að leika svona dauðadrukkinn mann á móti Ben Stiller. Ég hef ekkert oft orðið svona starstruck, ég hitti einu sinni Jennifer Aniston og gat ekki talað. Sem betur fer var ég með sólgleraugu.“

Þetta segir Ólafur Darri Ólafsson, einn þekktasti leikari landsins og fyrsti gestur Sigríðar Elvu Vilhjálmsdóttur í nýju þáttaröðinni Fókus sem fór af stað á sunnudaginn var. Ólafur talaði þar meðal annars um hve furðulegt honum hafi þótt að leika á móti stórleikaranum Ben Stiller.

„En þegar ég hugsa til baka, þá er það alveg sama tilfinning og í Perlur og svín,“ segir Ólafur. „Ég sat þá á móti Ingvari Sigurðssyni og hugsaði, ég trúi ekki að ég sé að leika á móti Ingvari Sigurðssyni. Það er alveg sama fallega tilfinningin.“

Hluta viðtalsins við Ólaf Darra, ásamt klippum úr kvikmyndinni The secret life of Walter Mitty, má sjá í spilaranum fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×