Lífið

Ólafur Darri er rödd nýs skíðaþáttar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson er þulur fyrsta þáttar í Salomon Freeski TV-seríunni en þátturinn er eingöngu tekinn upp á Íslandi.

Þátturinn er gerður til að heiðra minningu skíðakappanna Andreas Fransson og JP Auclair sem létust í Andesfjöllum í lok september á þessu ári.

Skíðamaðurinn Andreas sést í meðfylgjandi myndbandi og rennir hann sér meðal annars niður Búrfellshyrnu sem var eitt af mörgum afrekum hans í skíðaheiminum.

Salomon Freeski TV er sjónvarpssería útivistarmerkisins Salomon en horft hefur verið á þennan fyrsta þátt frá Íslandi tæplega fimmtíu þúsund sinnum þegar þetta er skrifað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×