Golf

Ólafur byrjar vel í úrtökumóti í Frakklandi

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Ólafur Björn Loftsson ásamt föður sínum, Lofti Ólafssyni.
Ólafur Björn Loftsson ásamt föður sínum, Lofti Ólafssyni. Vísir/Ólafur Björn
Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum lék fyrsta hringinn í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í Frakklandi á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari. Ólafur er í 14. sæti eftir fyrsta keppnisdag en 20-25 efstu kylfingarnir í mótinu komast áfram á næsta stig.

Ólafur Björn var stöðugur í dag en hann fékk fjóra fugla og tvo skolla. Hann er þremur höggum á eftir efstu mönnum en fimm kylfingar léku á 66 höggum í dag. Leikið Golf d'Hardelot vellinum í Frakklandi.

Á Facebook-síðu sinni kveðst Ólafur vera sáttur með spilamennsku dagsins. „Boltaslátturinn var betri en í síðustu mótum, hitti allar brautirnar nema eina og hitti 16 flatir í tilætluðum höggafjölda. Púttin voru ágæt á hringnum þó ég hefði verið til í að sjá aðeins fleiri detta. Frábært að hafa pabba á pokanum, við skemmtum okkur vel í dag. Nú er það bara að halda áfram að hafa gaman og gera enn betur á morgun,“ skrifar Ólafur.

Fjórir íslenskrir kylfingar taka þátt í úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina. Í síðustu viku komst Þórður Rafn Gissurarson úr GR áfram á annað stig eftir að hafa orðið í 23. sæti í móti í Englandi. Axel Bóasson úr GK féll úr keppni eftir þátttöku í móti í Þýskalandi. Íslandsmeistarinn Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG verður meðal keppenda í úrtökumóti sem fram fer í Portúgal í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×