Innlent

Ólafur Börkur Þorvaldsson einn af sex dómurum sem tilkynnti ekki um hlutabréfaviðskipti

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Fjallað var um Ólaf Börk Þorvaldsson í umfjöllun Kastljóss.
Fjallað var um Ólaf Börk Þorvaldsson í umfjöllun Kastljóss. Skjáskot/RÚV
Ólafur Börkur Þorvaldsson er einn af þeim sex núverandi dómurum við hæstarétt sem áttu í hlutabréfaviðskiptum fyrir hrun án þess að nefnd um aukastörf dómara hefði vitneskju um það. Þetta kom fram í umfjöllun Kastljóss í kvöld.  

Ólafur Börkur átti hlutabréf í Glitni á árinu 2007 í fimm mánuði. Verðmæti bréfa hans námu 14 milljónum króna. Í desembermánuði sama ár nam virði þeirra 11,4 milljónum króna áður en hann seldi þau til þess að fjárfesta í Sjóði 9, hlutabréfasjóði Glitnis en það fé leysti hann út með hálfra milljóna króna gróða fjórum mánuðum síðar.

Þá sýna gögn Kastljóss að hann átti hlut í fleiri fyrirtækjum og bönkum sem seld voru í desember árið 2007 líkt og Straum, Eimskipafélaginu og Landsbankanum.

Vefmiðillinn Eyjan sendi fyrirspurnir á hæstaréttardómara árið 2010 um mögulegar eignir þeirra og hæfi þeirra til þess að dæma í málum tengdum hruninu.

Ólafur svaraði fyrirspurninni þannig að ómögulegt væri að vita hverjir yrðu í málaferlum vegna bankahrunsins og því erfitt að meta nokkuð um hæfi, en að hann myndi víkja ef lög leyfa. Þar sagði hann fjármálaumsvif fjölskyldu sinnar nánast engin en að honum hefði tæmst lítill arfur á síðustu árum og þar  hafi verið hlutabréf sem hann hafi selt í kjölfarið.

Í upplýsingum frá formanni nefndar um aukastörf dómara kemur fram að Ólafur Börkur hafi ekki tilkynnt um hlutabréfaeign sína þrátt fyrir að verðmæti hlutabréfa hans í Glitni hafi verið það hátt að heimild hafi þurft fyrir eignahlutnum.


Tengdar fréttir

Vinir og vandamenn í dómarasætin

Þá hafa margir af frammámönnum Sjálfstæðisflokksins á síðustu árum komið að stöðuveitingunum umdeildu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×