Golf

Ólafur Björn tekur þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafur Björn á Íslandsmótinu í höggleik fyrr í sumar.
Ólafur Björn á Íslandsmótinu í höggleik fyrr í sumar. Vísir/Daníel
Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr NK, verður meðal þátttakenda á úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í haust. Fyrsti hluti þess fer fram í Frakklandi og hefst mótið 23. september.

Ólafur lék á sama velli í fyrra og bar hann vellinum vel söguna á Facebook-síðu sinni ásamt því að skrifa stuttan pistil um haustið.

„Eftir dágóðar vangaveltur ákvað ég að einblína eingöngu á úrtökumótin í Evrópu í ár. Ég lenti í smá álagsmeiðslum á úlnlið í fyrra sem hafði mikil áhrif á æfingar og keppni á versta tíma. Úlniðurinn minnti aðeins á sig fyrir skömmu og með hjálp frá Gauta Grétars hef ég haldið þessu í skefjum. Úrtökumótin austanhafs fá núna mína fulla athygli og á sama tíma get ég stjórnað álaginu í aðdraganda mótsins.“

Þá staðfesti Ólafur að hann myndi taka þátt í Nordic Golf League næstu vikurnar.

„Ég er mættur til Linköping í Svíþjóð og á morgun hefst Landeryd Masters. Á leiðinni til Svíþjóðar stoppaði ég í nokkra daga í London og keppti í móti á Jamega Pro Tour, aðeins til að hrista helstu rokspilamennskuna úr mér. Ég lék á 72 (+1) og 71 (E) höggum og endaði jafn í 11. sæti af 60 keppendum, 5 höggum frá efsta sætinu. Þrátt fyrir að það hafi vantað svolítið upp á spilamennskuna í mótinu átti ég ágæta spretti. Ég endaði með krafti í fyrradag, tvo undir á seinni 9 holunum og ég vippaði ofan í holu á síðustu brautinni til þess að fá útborgað. Þetta var flott upphitun fyrir mótið um helgina. Ég á rástíma klukkan 13.50 á morgun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×