Tónlist

Ólafur Arnalds og Arnór Dan með einstaka útgáfu af laginu Say My Name

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega falleg útgáfa.
Virkilega falleg útgáfa. vísir/valli/andri marinó.
Tónlistarmennirnir Ólafur Arnalds og Arnór Dan hafa gefið frá sér ábreiðu af laginu Say My Name sem sveitin Destiny's Child gerði heimsfrægt árið 1999.

Upprunalega lagið er mjög fjörugt og skemmtilegt en þeir félagarnir hafa gefið út mun rólegri útgáfu af því.

Virkilega vel heppnuð útgáfa sem hittir beint í mark en lagið var sett inn á YouTube í gær.

Hér að neðan má hlusta á útgáfu Ólafs og Arnórs, sem og upprunalegu útgáfu Destiny's Child.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×