Tónlist

Ólafur Arnalds Island Songs: Minnist fórnarlamba snjóflóða á Flateyri

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Annað lagið í Island Songs verkefni Ólafs Arnalds tónlistarmanns var gefið út í morgun. Ólafur er þessa daganna að ferðast um landið ásamt Baldvin Z leikstjóra við upptökur á völdum stöðum þar sem bæði mynd og tónlist eru tekin upp á sama tíma. Lokaútkoman verður breiðskífan og tónlistarkvikmyndin Island Songs sem fær útgáfu hjá Universal í október.

Að þessu sinni stoppaði Ólafur við á Önundarfirði þar sem frænka hans Dagný Arnalds vinnur sem organisti í Flateyrarkirkju og á Holti. Lagið sem þau unnu saman var hljóðritað í kirkjunni og er hljóðrænn minnisvarði um þá sem létust í snjóflóði þar árið 1995.

Myndbandið má sjá hér fyrir ofan.

Ólafur flytur lagið Árbakkinn ásamt Einari Georg og strengjasveit.Vísir/Jóhann Máni Jóhannsson
Fimm lög eftir

Á hverjum mánudegi í sumar kemur út nýtt lag og myndband á síðunni Islandsongs.is sem og á Youtube. Verkefnið á að veita innsýn inn í íslenska tónlistarsköpun um allt landið. Lögin verða í heildina sjö talsins og eru því fimm lög eftir.

Á hverjum stað velur Ólafur einhvern tónlistarmann sem honum hefur langað til þess að vinna með.

Í síðustu viku kom út lagið Árbakkinn sem Ólafur vann með Einari Georg á Hvammstanga. Það má sjá hér fyrir neðan.

Lögin af Island Songs eru gefin út á öllum helstu stafrænum tónlistarveitum samdægurs og myndböndin.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×