Handbolti

Ólafur: Mæti með kassann úti í þetta verkefni

Arnar Björnsson skrifar
„Við ætlum að ná í úrslit of ná sem bestu út úr þessu móti.  Það er spennandi leikur í kvöld við Spánverja og þar ætlum við að ná í tvö stig,“ segir Ólafur Guðmundsson sem verður í stóru hlutverki í kvöld í fjarveru Arons Pálmarssonar.

„Það er auðvitað skellur að Aron spili ekki. Frábær leikmaður og ég held að öll lið myndu sakna leikmanns sem er jafn góður. Við gerum okkur grein fyrir því en á sama tíma erum við búnir að fara í gegnum undibúninginn án hans og skellurinn er kannski aðeins minni fyrir vikið. Aron er frábær leikmaður sem öll lið vildu hafa í sínu liði.“

Þú ert skotfastur og þarft að henda nokkrum sinnum á markið.

„Algjörlega. Vonandi fæ ég stórt hlutverk og ætla að nýta mér þau tækifæri að hjálpa liðinu að ná árangri og gera það sem ætlast er til af mér,“ segir Ólafur en hann segist vera klár í verkefnið.

„Já, ég er með gott sjálfstraust og er búinn að spila vel með mínu liði bæði í sænsku deildinni og Meistaradeildinni. Ég mæti jákvæður og með kassann úti í þetta verkefni.“

Hvað með mótherjana í kvöld. Hvernig verða Spánverjarnir gegn ykkur?  

„Þeir eru gríðarlega sterkir það er vitað mál og mögulega sterkasta liðið í þessum riðli. Þetta snýst um að ná í stig og hvaðan stigin koma skiptir ekki öllu máli en við mætum í leikinn og ætlum að gera okkar besta og reyna að ná í sigur eins og alltaf. Við sjáum síðan til hvað gerist í kvöld.“

Það verður væntanlega enginn heimsendir þó að þið tapið fyrir Spánverjum?

„Nei, þetta er kannski sterkasta liðið í riðlinum en þetta snýst um að komast í 16-liða úrslit og vera í góðri stöðu eftir riðlakeppnina. Tvö stig í kvöld væri frábært en sjáum til.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×