Handbolti

Ólafur: Höfum ekki tíma til að svekkja okkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ólafur Guðmundsson sést hér í treyju númer 13 í leiknum í dag.
Ólafur Guðmundsson sést hér í treyju númer 13 í leiknum í dag. visir/epa
„Við vorum ekkert langt frá þessu, vorum inn í leiknum allan tímann og þetta hefði getað dottið báðum megin,“ segir Ólafur Guðmundsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir svekkkjandi tap gegn Slóvenum á HM í handbolta í Frakklandi.

„Þetta er svekkjandi, rosalega svekkjandi. Við börðumst, það vantaði ekki og við lögðum okkur alla fram allan leikinn. Svo er þetta bara í lokin sem þetta dettur bara fyrir þá, svona stöngin inn, stöngin út.“

Ólafur segir að liði hafi verið slakkt sóknarlega í fyrri hálfleiknum.

„Í síðari hálfleik spilum við flotta sókn og fína vörn. Við fengum of mörg mörk á okkur eftir hraða miðju hjá þeim, og það var dýrt. Við þurfum bara að fara yfir þessi mál og svo er bara strax annar leikur á morgun og við getum ekki verið að svekkja okkur mikið og þurfum bara að byrja hugsa um leikinn gegn Túnis.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×