Íslenski boltinn

Ólafur: Bæði liðin vilja sækja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur gerði Stjörnuna að bikarmeisturum í fyrra.
Ólafur gerði Stjörnuna að bikarmeisturum í fyrra. vísir/valli
„Bara pressa sem við setjum á okkur sjálfar. Við erum í fótbolta til að vinna og höfum farið þannig í alla leiki í sumar. Þessi leikur er engin undantekning,“ sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, aðpurður í samtali við Vísi hvort það væri pressa á Garðbæingum að vinna bikarmeistaratitilinn.

Stjarnan mætir Selfossi í bikarúrslitum í dag en þessi lið mættust einnig í úrslitaleiknum í fyrra. Þar vann Stjarnan öruggan 4-0 sigur en Ólafur býst við sterkara Selfossliði en í fyrra.

„Já, klárlega. Við vitum það eftir að hafa spilað við þær á tímabilinu, bæði í Lengjubikar og í Pepsi-deildinni. Þetta verður frábær leikur,“ sagði Ólafur en Selfoss vann fyrri leik liðanna í Pepsi-deildinni með tveimur mörkum gegn einu. Stjarnan svaraði fyrir sig með 1-3 sigri í seinni leiknum.

„Við nýttum svæðin sem þær gáfu okkur í seinni leiknum og sóknarleikurinn var beittari fyrir vikið. Veðrið truflaði svolítið í fyrri leiknum og við vorum ekki nógu aggresívar í föstum leikatriðum og fengum á okkur tvö mörk úr slíkum atriðum,“ sagði Ólafur sem sér sóknarfæri gegn Selfossi.

„Það er pláss fyrir framan og aftan vörnina þeirra. Bæði liðin vilja sækja og það skapast alltaf pláss og það er bara spurning hvort liðið er flinkara að nýta sér það. Það hafa komið mörk í þessum leikjum og það hefur verið spilaður sóknarleikur,“ sagði Ólafur ennfremur en hann segist geta stillt upp sínu sterkasta liði í dag.

„Það eru allar heilar og engin meiðsli hafa hrjáð okkur.“

Þjálfarinn segir enga þreytu í Stjörnuliðinu þrátt fyrir þétta dagskrá í ágúst þar sem liðið spilaði m.a. þrjá leiki á sex dögum á Kýpur í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

„Nei, það á bara að vera hamingja að taka þátt í þessu. Auðvitað var þetta erfitt ferðalag og það er erfitt að spila í þessum aðstæðum þarna úti en við vorum vel undirbúnar og stelpurnar eru í góðu formi svo það er engin afsökun,“ sagði Ólafur að endingu.

Leikur Selfoss og Stjörnunnar hefst klukkan 16:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Ásgerður: Hungrið er vonandi enn meira

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir leiðir Stjörnuna út á Laugardalsvöllinn í dag þegar Garðbæingar mæta Selfossi í úrslitaleik Borgunarbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×