Golf

Ólafía Þórunn: Það besta sem ég hef gert

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR. Vísir/Vilhelm
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR spilaði frábærlega á Íslandmótinu í golfi og tryggði sér sinn þriðja Íslandsmeistaratitil. Hún endaði á því að spila hringina fjóra á ellefu höggum undir pari.

„Þetta er bara geggjuð tilfinning og frábært," sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir  í samtali við Jón Júlíus Karlsson í útsendingu Rúv frá mótinu.

Ólafía Þórunn spilaði lokahringinn á fimm höggum undir pari og jafnaði með því vallarmetið á Jaðarsvellinum.

„Þetta var alveg ótrúlegt. Pútterinn var heitur. Pútterinn gerði klárlega útslagið í dag en síðan kom ég mér líka í færi," sagði Ólafía Þórunn.

Sjá einnig:Ólafía Þórunn Íslandsmeistari á metskori

„Ég horfði ekki á skortöfluna því ég ætlaði bara að einbeita mér að sjálfri mér og halda áfram en ekki fara í vörn. Það tókst," sagði Ólafía Þórunn sem segir þetta mót gefa sér sjálfstraust fyrir komandi mót í atvinnumennskunni.

„Ellefu undir pari er það besta sem ég hef gert. Þetta er alveg æðislegt," sagði Ólafía en hún fékk mikla samkeppni frá Valdísi Þóru á mótinu.

„Það var geðveikt að hafa svona harða samkeppni og frábært skor," sagði Ólafía Þórunn.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn: Ég er alltaf að læra betur á völlinn

Það stefnir í æsispennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í dag á Jaðarsvelli á Akureyri en það munar aðeins tveimur höggum á efstu þremur konunum eftir fyrstu átján holurnar.

Ólafía Þórunn Íslandsmeistari á metskori

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR varð Íslandsmeistari í golfi í þriðja sinn í dag þegar hún tryggði sér titilinn á Jaðarsvelli á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×