Golf

Ólafía Þórunn sveiflandi kát í íslensku roki á Bahama | Myndir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vinnur úr sandinum á Bahamaeyjum.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vinnur úr sandinum á Bahamaeyjum. mynd/gsí-seth
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, hefur leik fyrst íslenskra kvenna á LPGA-mótaröðinni á fimmtudaginn en fyrsta mótið fer fram í paradís á Bahamaeyjum.

Nánast allir bestu kylfingar heims eru mættir til leiks en fram kemur í frétt golf.is að veðurspáin sé fín fyrir næstu daga. Hitastigið verður um 25 gráður en einhver vindur er í kortunum.

„Keppnisvöllurinn er fínn og verður án efa erfitt að skora hann ef veðrið verður eins og það hefur verið á undanförnum dögum,“ sagði Ólafía Þórunn við golf.is á Bahamas en hún var þá nýbúin að leika níu holur.

„Það var alveg „íslenskt“ rok hérna í gær og dag. Það verður erfitt að eiga við völlinn ef vindurinn verður sterkur áfram. Ef vindurinn verður ekki til staðar þá á að vera hægt að skora vel á þessum frábæra velli,“ sagði Ólafía Þórunn.

Það virðist vera ótrúlega létt fyrir Ólafíu eins og sést á Instagram-færslu hennar frá því í kvöld en þar stillir hún sér upp með myndavél ásamt tveimur íslenskum fréttamönnum.

Pure Silk Bahamas LPGA Classic-mótið sem Ólafía er að fara að þreyta frumraun sína á verður í beinni á Golfstöðinni. Útsending frá fysta hring hefst klukkan 16.30 á fimmtudaginn.

Hér að neðan má sjá nokkrar glæsilegar myndir sem Sigurður Elvar Þórólfson, starfsmaður GSÍ og fréttamaður, tók af Ólafíu á Bahamaeyjum í dag.

mynd/gsí-seth
mynd/gsí-seth
mynd/gsí-seth
mynd/gsí-seth
mynd/gsí-seth

The crew has arrived! All the way from Iceland #PureSilkBahamas @puresilkbahamaslpga

A photo posted by Ólafía Kristinsdóttir (@olafiakri) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×