Golf

Ólafía Þórunn og Valdís Þóra eiga báðar möguleika á að keppa á ÓL í Tokýó

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísland hefur aldrei átt kylfing á Ólympíuleikum en það gæti breyst haldi íslensku stelpurnar áfram að standa sig svona vel á atvinnumannamótaröðunum.

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir eiga báðar ágæta möguleika á að blanda sér í baráttuna um sæti á næstu Ólympíuleikum sem fram fara í Tókýó í Japan árið 2020.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Golfsambands Íslands. Ólafía var í sæti númer 498 á heimslistanum þann 6. mars síðastliðinn og Valdís Þóra var í sæti númer 690.

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16 til 59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó í Brasilíu í fyrra komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti númer 446 þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra í sætum númer 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×