Golf

Ólafía Þórunn og Ragnhildur efstar og jafnar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð Íslandsmeistari 2011.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð Íslandsmeistari 2011. vísir/daníel
GR-ingarnir Ólafa Þórunn Kristinsdóttir og RagnhildurKristinsdóttir eru efstar og jafnar á fjórum höggum yfir pari eftir annan keppnisdag á Íslandsmeistaramótinu í höggleik sem fram fer á Leirdalsvelli.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, skellti sér í Leirdalinn í dag og tók myndirnar sem sjá má í þessari frétt.

Ólafía Þórunn lék vel í dag, en hún spilaði völlinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarins. Ragnhildur fékk fjóra fugla og fjóra skolla og var á parinu í dag.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK spilaði á einu höggi undir pari í dag líkt og Ólafía Þórunn, en hún er í þriðja sæti á fimm höggum yfir pari, höggi á undan tvöfalda Íslandsmeistaranum Valdísi Þóru Jónsdóttur úr GL sem er á sex höggum yfir pari eftir tvo hringi.

Þessar fjórar bera af eftir fyrstu tvo hringina á Íslandsmótinu, en næst kemur KarenGuðnadóttir á ellefu höggum yfir pari vallarins. Það stefnir í harða baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.

Birgir Leifur stefnir hraðbyri að sjötta Íslandsmeistaratitlinum.vísir/daníel
Efstu menn í karlaflokki eru rétt ríflega hálfnaðir í dag, en þar er Birgir Leifur Hafþórsson kominn í örugga forystu. Hann er að spila á tveimur höggum undir pari í dag og er samtals á sjö höggum undir pari eftir níu holur.

Gísli Sveinbergsson, Sigmundur Einar Másson og Þórður Rafn Gissurason koma næstir á einu höggi undir pari, en bæði Sigmundur og Þórður Rafn eru höggi undir pari í dag.

Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn Ólafíu Þórunni.vísir/daníel
Valdís Þóra Jónsdóttir hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari.vísir/daníel
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í baráttunni.vísir/daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×