Golf

Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir horfir á eftir fyrsta upphafshöggi dagsins
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir horfir á eftir fyrsta upphafshöggi dagsins Mynd/GSÍ/seth@golf.is
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lék seinasta hringinn á Pure Silk Championship á LPGA-mótaröðinni á tveimur höggum undir pari og lenti í 69-72. sæti á alls fimm höggum undir pari í frumraun sinni á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna.

Ólafía byrjaði mótið af krafti og var á sjö höggum undir pari eftir tvo daga en þreytan fór að taka til sín á þriðja degi og lék hún á fjórum höggum yfir pari á þriðja hring.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn í 69. sæti eftir erfiðan þriðja hring

Hún lék frábært golf í dag og tapaði aðeins höggi á einni holu, þeirri sextándu þar sem hún fékk tvöfaldan skolla í fyrsta og eina skiptið á mótinu. Annars lék hún stöðugt golf og fékk þrettán pör og fjóra fugla.

Ólafía byrjaði á tíundu braut í dag og byrjaði af krafti en hún fékk fugl strax á annari braut. Fylgdi hún því eftir með fugli á fimmtu braut en tvöfaldur skolli kom henni aftur á parið á sjöundu braut.

Ólafía lét það ekki trufla sig og krækti í fugl strax á næstu holu og var því einu höggi undir pari eftir fyrri níu holur dagsins eftir par á 18. braut.

Lék hún afar stöðugt golf á seinni níu holum dagsins en hún fékk par á fyrstu sex holunum á seinni níu holunum. Náði hún að krækja í fugl á sextándu holunni og var hún því komin tveimur höggum undir par á deginum og alls fjórum höggum undir par.

Fylgdi hún því eftir með tveimur pörum og lauk því leik á fjórum höggum undir pari í 69-72. sæti ásamt spænsku kylfingunum Maria Parra, Belen Mozo og Amelia Lewis.

Frumraun hennar á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna gekk því vel en hún viðurkenndi sjálf að undirbúningurinn hefði getað verið betri eftir að hafa gengist undir aðgerð rétt fyrir jól.

Hún nær vonandi að byggja á þessari reynslu fyrir næsta mót sem hefst þann 16. febrúar næstkomandi í Adelaide í Ástralíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×