Golf

Ólafía Þórunn komin inn á lokaúrtökumótið fyrir LPGA í Bandaríkjunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Vilhelm
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR skrifar íslensku golfsöguna þessa dagana en hún tryggði sér í gær sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum.

Ólafía Þórunn lék fjórða og síðasta hringinn á annars stigs úrtökumótinu á pari og náði þar með tólfta sætinu. Efstu 80 kylfingarnir komust áfram og Ólafía Þórunn komst því örugglega áfram.

Ólafía Þórunn lék samtals hringina fjóra á 288 höggum eða 72-73-71-72 en par vallarins er 72 högg. Á þessum tölum má sjá hversu jöfn hún var á þessu móti.

Ólafía á einungis að komast í gegnum þriðja og síðasta stigið til að komast inn á LPGA mótaröðina en lokaúrtökumótið fer fram á LPGA International vellinum í Flórída í lok nóvember.

Ólafía er fyrsta íslenska konan sem nær inn á annað stig úrtökumótsins fyrir LPGA mótaröðina. Hún hefur dvalið að undanförnu í Bandaríkjunum við æfingar en hún mun keppa á tveimur mótum á LET Evrópumótaröðinni í framhaldinu.

Alfreð Brynjar Kristinsson, afrekskylfingur úr GKG, var systur sinni til aðstoðar á öðru stigi úrtökumótsins en spilað var á Plantation golfsvæðinu í Flórída í Bandaríkjunum.

Ólafía Þórunn vann sér inn keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í lok síðasta árs. Hún er aðeins önnur íslenska konan sem nær inn á mótaröð þeirra bestu í Evrópu. Ólöf María Jónsdóttir úr GK var sú fyrsta sem braut ísinn árið 2004, fyrst allra íslenskra kylfinga.

Næst á dagskrá hjá Ólafíu er að fara til Kína þar sem hún fékk boð um taka þátt á sterku LET móti. Hún fær ekki mikinn tíma til að aðlagast nýjum aðstæðum og venjast tímamismuninum því hún mættir til Kína aðeins degi fyrir mótið.

Ólafía Þórunn keppir síðan í framhaldinu móti í Abu Dhabi en það er einnig á LET Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×