Golf

Ólafía Þórunn kom í hús á tveimur höggum undir pari

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur byrjað tímabilið í LPGA af krafti.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur byrjað tímabilið í LPGA af krafti. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, lék stöðugt og gott golf og kom í hús á 71 höggi, tveimur höggum undir pari á þriðja hring ISPS Handa mótsins í Ástralíu sem er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Eftir að hafa tapað samtals sjö höggum fyrstu tvo dagana tapaði hún aðeins einu höggi í dag og fékk þrjá fugla.

Er þetta annað mót Ólafíu á þessari sterkustu mótaröð heimsins í kvennagolfi. Komst hún í gegnum niðurskurðinn í gær með ótrúlegum lokasprett með því að setja niður stutt innáhögg á lokabrautinni.

Ólafía byrjaði hringinn vel en eftir par á fyrstu tveimur holunum kom fugl á þriðju holu.

Því fylgdu níu pör í röð en tapað högg á þrettándu holu kom henni aftur á parið á mótinu. Annar dagurinn í röð sem Ólafía tapaði höggi á þrettándu braut.

Hún var þó fljót að svara fyrir það, á fimmtándu holu sem er par 5 hola krækti hún í fugl og komst undir parið á ný en hún tapaði einmitt höggi á sömu braut deginum áður.

Ólafía fylgdi því eftir með fugli á sautjándu braut og pari á sextándu og átjándu og lauk því leik á tveimur höggum undir pari á deginum með þrjá fugla og einn skolla, alls tveimur höggum undir parinu á mótinu sömuleiðis.

Eftir að hafa byrjað daginn í 64. sæti endaði hún hringinn í 35. sæti þegar þetta er skrifað en það áttu þó margir kylfingar eftir að klára þriðja hringinn á þessu sterka móti.

Ólafía var þegar búin að tryggja sér verðlaunasæti á mótinu fyrir þriðja hringinn er hún komst í gegnum niðurskurðinn.     

Hefur hún því fengið verðlaunafé í báðum mótum sínum á LPGA-mótaröðinni en í samtali við Vísi fyrr í dag sagðist hún ætla að njóta þess að spila seinustu hringina í Ástralíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×