Golf

Ólafía Þórunn í kringum 120. sæti forgangslistans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn tekur sigurhopp.
Ólafía Þórunn tekur sigurhopp. mynd/Þórður Rafn Gissurarson
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður líklega í kringum 120. sæti á forgangslista þegar tekið verður við skráningum á mót á næsta keppnistímabili í bandarísku LPGA-mótaröðinni.

Ekki hefur verið gefið út hvernig nákvæm skipting verður á forgangslistanum fyrir næsta keppnistímabil en líklegt að það verður svipað og það var fyrir nýliðið tímabil.

Sjá einnig: Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

Ólafía Þórunn hafnaði í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær en 20 efstu kylfingarnir á mótinu unnu sér sæti í flokki 12 á forgangslistanum.

Flokkar 1-11

Í efsta styrkleikaflokki eru 80 efstu kylfinganrir á peningalista síðasta keppnistímabils. Í næstu sex flokkum á eftir eru svo kylfingar sem hafa ýmist unnið stórmót á ferlinum eða ákveðinn fjölda móta sem gefur þeim áfram þátttökurétt.

Í áttunda styrkleikaflokki eru svo 80 efstu keppendur peningalista núverandi tímabils (2017) sem þýðir að ef Ólafíu Þórunni gengur vel í upphafi árs mun hún eiga greiðari aðgang í önnur mót.

Í næstu flokkum á eftir komast að tíu efstu keppendur Symetru-mótaraðarinnar, þeirri næststerkustu í Bandaríkjunum, og keppendunum sem ovur í 81.-100. sæti peningalista LPGA-mótaraðarinnar.

Sjá einnig: Stelpan sem vann Ólafíu var að vinna í annað sinn | Sjáðu sigurpúttið

Nýliðar fá tækifæri

Þar á eftir kemur styrkleikaflokkkur tólf, sem er flokkurinn hennar Ólafíu Þórunnar. Sú sem náði sama árangri og Ólafía Þórunn í fyrra, hin bandaríska Grace Na, var í 120. sæti forgangslistans þá og má gera ráð fyrir því að hlutskipti Ólafíu Þórunnar verði svipuð nú.

Fram kemur á golf.is að fimmtán kylfingar af þeim 20 sem urðu efst á úrtökumótinu í fyrra fengu tækifæri á fyrstu mótunum í fyrra. En ljóst er að tækifæri Ólafíu Þórunnar verða fleiri fyrir þær sakir að hún hafnaði í öðru sæti mótsins í ár.

Fyrsta mótið á nýju keppnistímabili verður dagana 23.-29. janúar. Pure Silk-mótið fer fram á Bahamas-eyjum og má gera fastlega ráð fyrir því að Ólafía Þórunn fái keppnisrétt á mótinu.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn kom út í mínus

Golfstöðin sýnir frá LPGA-mótaröðinni í golfi en ekki hefur enn verið staðfest hvort að það standi til boða að sýna frá mótinu, hvort sem er síðustu tvo keppnisdagana eða alla fjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×