Golf

Ólafía Þórunn í 37. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn á Bahamaeyjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 37. sæti eftir fyrsta hringinn á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum. Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía, sem er fyrsti Íslendingurinn sem leikur á þessari sterkustu mótaröð heims, spilaði vel í dag, á 71 höggi, eða á tveimur höggum undir pari.

Þrettán kylfingar léku á tveimur undir pari í dag en þeir eru jafnir í 37. sætinu. Alls taka 108 kylfingar þátt í mótinu.

Brittany Lincicome frá Bandaríkjunum er með forystu á níu höggum undir pari.

Keppni heldur áfram á morgun en Ólafía hefur leik um klukkan 17:30. Útsendingin Golfstöðvarinnar hefst klukkan 16:30.


Tengdar fréttir

Vil mjólka það að ég sé frá Íslandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir brýtur í dag blað í sögu íslensks golfs er hún verður fyrsti íslenski kven­kylfingurinn sem keppir á bandarísku atvinnumótaröðinni í golfi. Mótið fer fram á Bahama-eyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×