Golf

Ólafía Þórunn í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía lék á sex höggum undir pari í dag.
Ólafía lék á sex höggum undir pari í dag. mynd/let
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 10. sæti eftir annan keppnisdaginn á lokaúrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð kvenna í atvinnugolfi.

Ólafía lék einstaklega vel í dag, eða á sex höggum undir pari. Hún er samtals á fjórum höggum undir pari.

Ólafía var í 72. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn og hækkaði sig því um 62 sæti í dag.

Tuttugu efstu kylfingarnir tryggja sér fullan keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni. Mótinu lýkur á sunnudaginn.

Með því að smella hér má sjá hvernig annar dagurinn gekk fyrir sig en hann var í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×