Golf

Ólafía Þórunn færist á Stöð 2 Sport 4

Ólafía Þórunn virðist kunna vel við sig á Ocean vellinum á Bahamaeyjum.
Ólafía Þórunn virðist kunna vel við sig á Ocean vellinum á Bahamaeyjum. MYND/GSIMYNDIR.NET/SETH
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur keppni á þriðja degi á Pure Silk Bahama Classic-mótinu á Bahamaeyjum klukkan 16:23.

Ólafía spilaði frábærlega á fyrstu tveimur dögunum á mótinu. Hún var á tveimur höggum undir pari eftir fyrsta daginn og hún bætti um betur í gær og lék á fimm höggum undir pari. Ólafía komst auðveldlega í gegnum niðurskurðinn.

Ólafía og fimm aðrir kylfingar eru jafnir í 20. sæti. Hún er í ráshóp með Moriya Jutanugarn frá Tælandi.

Golfstöðin hefur sýnt frá fyrstu tveimur keppnisdögunum en þar sem útsendingartími mótsins skarast við útsendingartíma Farmers Insurance mótið á PGA-mótaröðinni verður sýnt frá Pure Silk-mótinu á Stöð 2 Sport 4. Útsendingin, sem hefst klukkan 20.00, verður aðgengileg fyrir áskrifendur Golfstöðvarinnar.

Þá verður vitaskuld bein textalýsing frá gangi mála á íþróttavef Vísis.


Tengdar fréttir

Harður heimur fyrir Ólafíu

Fólk sem stendur Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur nærri telur að hún muni halda þátttökurétti sínum á LPGA-mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×