Golf

Ólafía Þórunn endaði þriðja daginn í röð á frábæran hátt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði fugli á lokaholu sinni á LPGA Volvik meistaramótinu í golfi sem fram fer á Ann Arbor vellinum við Detroit.

Ólafía Þórunn lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari og kláraði því mótið á þremur höggum undir pari.  Þessi spilamennska skilar henni 56. til 63. sætinu á mótinu sem er hennar besti árangur á LPGA-mótaröðinni frá því að hún náði 30. sætinu á sínu öðru LPGA-móti í Ástralíu í febrúar.

Shanshan Feng vann mótið en hún spilaði á 19 höggum undir pari sem er mögnuð frammistaða hjá henni. Þrátt fyrir það þá lék hún bara einu höggi betur en þær Mijee Lee frá Ástralíu og Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu.

Ólafía Þórunn endaði þriðja hringinn í röð með því að fá annaðhvort fugl eða örn. Það eru góð fyrirheit fyrir hana að klára svona glææsilega á síðustu þremur hringum mótsins.

Það var mikið um að vera á fyrri níu holunum þar sem hún var með fjóra fugla og tvo skolla. Ólafía Þórunn byrjaði á 10. holunni í dag.

Ólafía fékk par á fyrstu sjö holunum á seinni níu en fékk síðan skolla á næstsíðustu holu. Í stað þess að hengja haus þá endaði hún á fugli á lokaholunni og hækkað sig um nokkur sæti.

Það er stutt milli móta hjá Ólafíu enda keppir hún á ShopRite LPGA Classic í New Jersey í næstu viku.


Tengdar fréttir

Erfiður dagur hjá Ólafíu Þórunni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fann sig ekki á þriðja degi LPGA Volvik meistaramótsins í golfi sem fer fram á Ann Arbor vellinum í Detroit.

Ólafía Þórunn sló lengra en púttaði verr

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir datt niður um 38 sæti eftir erfiðan þriðja dag á LPGA Volvik meistaramótinu sem fram fer á Ann Arbor vellinum við Detroit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×