Golf

Ólafía Þórunn byrjar rólega í Kína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR. Mynd/golf.is
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf í dag keppni á móti í Kína sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Ólafía Þórunn er á þremur höggum yfir pari að loknum fyrsta keppnisdegi og er ásamt öðrum í 74. sæti af 125 keppendum.

Er hún sem stendur fyrir neðan niðurskurðarlína og þarf því að spila betur á morgun til að komast í gegnum niðurskurðinn.

Leticia Ras-Anderica frá Þýskalandi og Caroline Hedwall frá Svíþjóð leiða mótið eftir fyrsta dag á fimm höggum undir pari.

Ólafía Þórunn hefur spilað frábærlega á þessu ári og náð best 16. sæti á móti á Evrópumótaröðinni. Þá er hún komin á lokastig úrtökumótaraðarinnar fyrir bandarísku LPGA-mótaröðina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×