Golf

Ólafía Þórunn byrjar illa á Indlandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn þarf að komast á flug.
Ólafía Þórunn þarf að komast á flug. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, fer ekki vel af stað á opna Indlands-mótinu sem fram fer í borginni Gurgaon en það hófst í morgun.

Ólafía er fjórum yfir pari eftir sex holur en hún er búin að fá tvo skolla og einn skramba. Hún byrjaði á tíundu braut og fékk par á fyrstu tveimur holunum.

Sjá einnig: Ólafía Þórunn: Þá veit ég að næsta ár mun líta vel út fyrir mig

Hún fékk fyrsta skollann á 12. holu sem er par þrjú en svo fékk hún par á 13. holu. Því fylgdi skrambi, eða tvöfaldur skolli, á 14. holu sem er par fjögur. Nú síðast fékk hún svo skolla á 15. holu sem er par fimm.

Ólafía Þórunn er nú þegar sex höggum á eftir efstu konu sem er Christine Wolf frá Austurríki en hún á auðvitað eftir að spila mikið golf í dag og getur rétt sinn hlut.

Ólafía var í forystu eftir fyrstu tvo dagana á móti í Abú Dabí í síðustu viku en missti svo flugið og hafnaði í 26. sæti. Mótið á Indlandi líkt og það í Abú Dabí eru bæði hluti af Evrópumótaröð kvenna.

Hér má sjá stöðuna í mótinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×