Golf

Ólafía Þórunn á einu höggi undir pari eftir dag 1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/gsimyndir.net/Seth
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 41. til 60. sæti eftir fyrsta daginn á ISPS Handa mótinu í Ástralíu sem er hluti af bandarísku mótaröðinni, LPGA.

Ólafía Þórunn lék á 72 höggum á fyrsta hringnum eða einu höggi undir pari. Þetta er annað mótið á ferlinum hjá Ólafíu á sterkustu mótaröð heims.

Ólafía hóf leik á 10. teig í gær og fékk skolla á fyrstu holuna en hún lét það ekki slá sig útaf laginu.

Ólafía svaraði því með því að fá fjóra fugla á næstu tólf holum og var þá komin þremur höggum undir par.

Hringurinn endaði samt ekki nógu vel. Ólafía var í góðri stöðu þar til hún tapaði tveimur höggum á sjöttu og sjöundu braut sem voru 15. og 16. brautin hjá henni.

Ólafía Þórunn er sjö höggum á eftir efstu konu sem var Katherine Kirk frá Ástralíu á átta höggum undir pari.

Ólafía Þórunn er í ráshóp með Belen Mozo frá Spáni og Celine Herbin frá Frakklandi í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana.

Mozo hefur verið á LPGA frá árinu 2011 og Herbin hefur leikið á LPGA frá árinu 2015. Mozo er í 162. sæti á heimslistanum og Melin er í 224. sæti á meðan Ólafía er í sæti nr. 607 á heimslistanum.

Celine Herbin lék á 72 höggum eins og Ólafía Þórunn. Belen Mozo lék hinsvegar á 77 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Hún er í 122. sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×