Golf

Ólafía Þórunn: Fæ samviskubit ef ég er ekki að æfa mig

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem Hjörtur Hjartarson ræddi við hana um atvinnumennskuna og fleira. Ólafía segist tapsár og er spennt fyrir komandi árum í atvinnumennskunni.

„Þeir drógu mig út á völl. Fyrst fannst mér ekkert sérstaklega gaman í golfi þar sem þeir voru miklu betri en ég. Ég var bara: á hvaða holu erum við? Hvað eru margar holur eftir?" sagði Ólafía og hló þegar hún var aðspurð út í fyrstu kynni sín af golfi. Bræður hennar og faðir drógu hana út á völl.

Ólafía er annar kvenkyns atvinnukylfingurinn sem kemur frá Íslandi, en áður hafði Ólöf María Jónsdóttir reynt fyrir sér. Þetta krefst mikillar vinnu segir Ólafía.

„Ég fæ rosalegt samviskubit ef ég er ekki að æfa mig. Það gerðist ekki áður. Þegar maður er kominn með stimpilinn að þetta sé atvinna þín þá ertu bara: Ég verð að fara."

Ólafía bjó til mynd fyrir sig til að halda sér á tánum, en ákvað síðar að byrja að selja myndina í styrktarskyni. Það reyndist vel.

„Ég byrjaði að gera þetta fyrir sjálfan mig, en svo ákvað ég að prufa að selja þetta og leyfa almenningi að styrkja mig. Salan hefur gengið vonum framar."

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi, er mjög hrifin af Ólafíu sem kylfingi og sparar ekki hrósið.

„Hún er mjög góður íþróttamaður. Hún er sterk, hávaxin og hefur mjög góða tækni. Hún slær langt og slær vel og það eru fáir veikleikar í hennar leik," sagði landsliðsþjálfarinn, en hversu langt getur hún náð?

„Það er mjög erfitt að segja. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig samkeppnin er þarna, en miðað við árangurinn hjá henni á síðasta ári þá var hún að spila nokkrum sinnum meðal tíu og fimmtán efstu í mótaröðinni," sagði Úlfar.

Innslagið í heild sinni má sjá hér að ofan þar sem Hjörtur og Ólafía fara meðal annars í keppni.


Tengdar fréttir

Magnað að sjá hvernig Ólafía stóðst álagið

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í gær önnur íslenska konan til að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi. Keppir um allan heim á næsta ári en þarf sjálf að borga brúsann.

Íþróttamaður ársins 2015 | Heildarniðurstöður kjörsins

Eins og fram kom á Vísi í kvöld var sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir kjörinn Íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttamanna en niðurstöður kosningarinnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×