Innlent

Ólafía segir sig frá öllum trúnaðarstöðum á vegum verkalýðssamtakanna

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ólafía B. Rafnsdóttir, fráfarandi formaður VR.
Ólafía B. Rafnsdóttir, fráfarandi formaður VR.
Ólafía B. Rafnsdóttir, fráfarandi formaður VR hefur ákveðið að segja sig frá stöðu fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands og stöðu varaformanns Landsambands íslenzkra verzlunarmanna.

Ólafía tilkynnti forsetum ASÍ og formanni LÍV ákvörðun sína í morgun og mun hún ekki gegna áfram trúnaðarstörfum á vegum verkalýðssamtakanna frá og með deginum í dag.

Í tilkynningunni segir einnig:

„Þessi ákvörðun er tekin í kjölfar úrslita í kosningum til formanns VR og einnig með tilliti til yfirlýsinga nýkjörins formanns um að niðurstaða kosninganna feli í sér vantraust á forystu ASÍ, höfnun á SALEK samkomulaginu og öðrum meginþáttum í samstarfi aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda.

Um leið og ég þakka öllu samstarfsfólki mínu á vettvangi verkalýðssamtaka ánægjulegt og gefandi samstarf óska ég samtökum launafólks farsældar og góðs gengis og vona að allir hlutaðeigendur sýni þessari ákvörðun skilning.“

Ólafía hefur verið formaður VR frá árinu 2013 en hlaut ekki endurkjör í formannskjöri VR á þriðjudag. Ragnar Þór Ingólfsson hlaut 63 prósent atkvæða og tekur við formennsku af Ólafíu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×