Golf

Ólafía náði sér ekki á strik á lokadeginum og hafnaði í 26. sæti

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær í Abú Dabí.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir slær í Abú Dabí. Mynd/LET/Tristan Jones
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafnaði í 26. sæti á Fatima Bint Mubarak mótinu í golfi en mótið er hluti af LET-mótaröðinni, næst sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum og þeirri sterkustu í Evrópu.

Ólafía leiddi eftir fyrsta hring og hélt forskotinu út annan hringinn en eftir að hafa leikið á tveimur höggum yfir pari í gær mátti hún varla við mistökum á lokahringnum.

Ólafía sem lék í ráshóp með sigurvegara mótsins, Beth Allen, byrjaði daginn á pari á fyrstu þremur holunum.

Tveir skollar á 4. og 7. holu gerðu það að verkum að hún var tveimur höggum yfir pari eftir fyrri níu holurnar.

Náði hún að komast á parið í dag með tveimur fuglum á 11. og 12. holu vallarins en hún varð fyrir áfalli á 14. holu þegar hún fékk tvöfaldan skolla.

Lenti innáhögg hennar þá á gangbraut við hlið teigsins í öðru höggi.

Fylgdi hún því eftir með öðrum tvöföldum skolla á 15. braut og féll hún niður í 26. sæti en hún endaði hringinn og mótið á þremur pörum í röð.

Var hringur dagsins versti hringur hennar á mótinu en hún endaði 14. höggum á eftir efsta kylfing.

Ólafía er á fyrsta tímabili sínu á LET-mótaröðinni en hún er aðeins annar íslenski kylfingurinn sem tekur þátt á mótaröðinni.

Þá verður Ólafía aftur á ferðinni í lok nóvember þegar hún tekur þátt í loka úrtökumótinu fyrir LPGA, sterkstu mótaröð í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×