Golf

Ólafía lenti í ellefta sæti í Belgíu | Þórður byrjaði lokahringinn illa

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mynd/gsí
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir endaði í 11. sæti á Citizenguard Letas-mótinu í Belgíu en mótið er hluti af næst sterkustu atvinnumannamótaröð Evrópu.

Ólafía var í 7. sæti fyrir lokahringinn í dag fjórum höggum á eftir efsta kylfing en hún lék á tveimur höggum yfir pari á lokahringnum.

Lauk hún leik í ellefta sæti en Ólafía deildi því með fimm öðrum kylfingum, ellefu höggum á eftir sigurvegaranum.

Þórður Rafn byrjaði lokahringinn á Sparkassen-Open illa en hann fékk fjóra skolla á fyrstu tólf holunum og var tveimur höggum yfir pari fyrir lokasprettinn.

Honum tókst þó að laga stöðuna aðeins með þremur fuglum á lokaholunum en hann endaði á að deila fjórtánda sæti með fjórum kylfingum, sex höggum á eftir efsta kylfing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×