Golf

Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía lék á 11 höggum yfir pari.
Ólafía lék á 11 höggum yfir pari. MYND/LET/TRISTAN JONES
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, náði sér ekki á strik á öðrum keppnisdegi á Hero Women's Indian Open mótinu á Indlandi. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn og er því úr leik.

Ólafía lék á fjórum höggum yfir pari fyrsta keppnisdaginn og í dag fór hún hringinn á 79 höggum, eða sjö yfir pari.

Fjórða holan reyndust Ólafíu dýr en hún lék hana á níu höggum.

Ólafía lék hringina tvo á samtals 155 höggum, eða 11 höggum yfir pari.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×