Golf

Ólafía hættir á Evrópumótaröðinni: Á leið í aðgerð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía fagnar með Kristni, bróður sínum.
Ólafía fagnar með Kristni, bróður sínum. Mynd/GSÍ
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mun að öllum líkindum ekki taka þátt í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Það fer fram í Marokkó síðar í mánuðinum.

Ólafía Þórunn tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum um helgina, sem er sterkari mótaröð. Það er þó ljóst að hún mun ekki fá þátttökurétt á öllum LPGA-mótum sem í boði eru. Líklegt að hún fái að keppa á að minnsta kosti átján mótum en mótunum getur fjölgað ef vel gengur.

Sjá einnig: Næsta markmið er að vinna mót á LPGA

„Ég mun einbeita mér að þessari mótaröð [LPGA],“ segir Ólafía Þórunn í samtali við Vísi. „Það á eftir að leysa ýmis praktísk atriði, svo sem hvar ég mun búa en það er ljóst að ég mun eyða miklum tíma í Bandaríkjunum.“

Ólafía Þórunn keppti á Evrópumótaröðinni síðasta tímabil en var ekki á meðan 80 tekjuhæstu kylfinganna þar og er þar með ekki með sjálfkrafa þátttökurétt á næsta tímabili. Hún þyrfti að endurnýja hann með því að komast í gegnum úrtökumót sem fer fram í Marokkó síðar í þessum mánuði.

„Ég held að ég muni hætta við það. Ég er að fara í aðgerð á kjálka og vil flýta aðgerðinni,“ segir hún en fyrsta mót LPGA-mótaraðarinnar fer fram í lok janúar. Hún vill ekki trufla undirbúning fyrir það mót.

Sjá einnig: Fjögur ný mót og verðlaunafé aldrei meira

Það hefur staðið lengi til að Ólafía Þórunn fari í aðgerðina en það vegna óeðlilegs vaxtar í neðri kjálka.

„Þetta uppgötvaðist þegar ég var nítján ára en þegar ég var yngri var ég með eðlilegt bit. Þetta er svo eitthvað sem hefur ágerst með tímanum en ég hef verið með spangir til að undirbúa mig fyrir þessa aðgerð.“

„En þetta er einfaldlega eini tíminn fyrir mig að fara í þessa aðgerð,“ bætir hún við en það verður þétt spilað á LPGA-mótaröðinni sem telur alls 35 mót á næsta ári.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn kom út í mínus

Þó svo Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafi endað í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær, og fengið hálfa milljón króna í verðlaunafé, kemur hún út í mínus eftir þátttöku sína.

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

"Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.

Næsta markmið er að vinna mót á LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki enn komist í gegnum helminginn af þeim heillaóskum og skilaboðum sem hún fékk eftir að hún tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, þeirri sterkustu í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×