Golf

Ólafía er 18 holum frá draumnum: "Planið er að vera andlega sterk og þolinmóð“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn er í góðum gír fyrir lokahringinn.
Ólafía Þórunn er í góðum gír fyrir lokahringinn. Mynd/Golfsamband Íslands
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, er nú einungis einum hring frá því að tryggja sig inn á stærstu kvennamótaröð heims í golfi.

Ólafía leikur í dag fimmta og síðasta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir LGPA-atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum. Gert er ráð fyrir því að hún hefji leik um klukkan 14:30 en til að vinna sér fullan keppnisrétt á mótinu þarf hún að enda meðal tuttugu efstu kylfinganna eftir daginn.

Í samtali við golf.is segist Ólafíu líða vel fyrir lokadaginn, eins og fyrir hina daga. „Ég reyni að hugsa sem minnst um golf eftir hringina og ég vinn með hugarþjálfunarverkefni á kvöldin,“ segir Ólafía við golf.is þegar hún var innt eftir því hvernig hún hafði undirbúið sig fyrir síðasta hring.

„Mér líður vel og þessi hringur var mjög svipaður og hinir, var með 27 pútt. Planið fyrir lokahringinn er að vera andlega sterk og þolinmóð,“ segir Ólafía.

Sjá einnig: Tekst Ólafíu að endurskrifa íslenska golfsögu?

Það er vart annað hægt að segja en að Ólafía sé í ágætri stöðu fyrir daginn. Hún er í öðru sæti með -13, tveimur höggum á eftir Jaye Marie Green, og með níu högga forskot á fjóra kylfinga sem deila 19. sæti fyrir lokahringinn. Það er þó ekkert í hendi ennþá enda hefur það sýnt sig á þessum mótum að hlutirnir eru fljótir að breytast.

Þarf ekki að fara lengra en að skoða frammistöðuna sem Ólafía sýndi á öðrum degi þegar hún lyfti sér upp um 62. sæti og blandaði sér í toppbaráttuna.

Sem fyrr segir mun Ólafía hefja leik klukkan 14:30 í dag og mun Vísir greina frá gangi mála á lokahringnum. Hér að neðan má sjá þegar Ólafía púttaði fyrir fugli á 18. holu í gær.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×