Golf

Ólafía auglýsti Arctic Open í viðtölum við erlenda fjölmiðla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Myndir/GSÍmyndir/Samsett
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var ekki aðeins í viðtölum við íslenska fjölmiðla eftir frábæra frammistöðu hennar á lokaúrtökumótinu fyrir LGPA-mótaröðina.

Ólafía fór í viðtöl við erlenda fjölmiðla líka og þar á meðal var heimasíða LGPA-mótaraðarinnar.

Ólafía Þórunn var fyrirmyndar sendiherra Íslands í þessum viðtölum og notaði tækifærið til að auglýsa íslenskt golf og ekki síst Miðnæturmót Golfklúbbs Akureyrar, Arctic Open.

„Það er léttir að vera búinn að klára hringinn. Ég er svo ánægð og virkilega ánægð að vera íslensk,“ sagði Ólafía Þórunn.

„Það eru svo margir þarna úti að reyna að ná þessu þannig að þetta er alveg stórkostlegt. Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér líður,“ sagði Ólafía Þórunn.

„Allt síðan að ég var krakki hefur mér dreymt um að komast þangað og nú er ég búin að ná þessu. Þetta er bara ótrúlegt,“ sagði Ólafía og talið barst síðan að Íslandi.

„Það ættu allir að koma og prófa að spila golf á Íslandi. Það er frábært og líka mjög vinsælt sport á Íslandi. Við erum með 65 golfvelli og við erum alltaf tilbúin í það að fá fleiri ferðamenn,“ sagði Ólafía.

Ólafía Þórunn talaði sérstaklega um  Arctic Open sem er eins og flestir vita er spilað í miðnætursólinni á Jaðarsvelli á Akureyri í júní á hverju ári. Það er jú engu líkt að spila golf um nótt um hásumar á Íslandi þegar sólin neitar að setjast.

Ólafía Þórunn er því einkar flottur sendiherra fyrir íslenskt golf, hún er ekki aðeins að vekja athygli á Íslandi með frammistöðu sinni heldur einnig með því að auglýsa golfvelli og golfvelli á Íslandi. Það verður fróðlegt að sjá hvort erlendum kylfingum fjölgi á Íslandi í framhaldinu.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn kom út í mínus

Þó svo Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafi endað í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær, og fengið hálfa milljón króna í verðlaunafé, kemur hún út í mínus eftir þátttöku sína.

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA

"Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×