Lífið

Októberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu traust

Elsku Vogin mín. Þú ert að fara inn á dásamlegt tímabil! Þú átt afmæli í þessum mánuði svo núna eru þín áramót og það sem gerist núna sýnir þér í hvaða átt þú ert að fara næstu mánuði.

Það er alltaf mest að gerast í kringum haustin hjá þér. Mannréttindi skipta þig svo miklu máli og þú hefur ríka tilhneigingu til að verja þá sem minna mega sín.

Þú hefur svo sterkar skoðanir á öllu en ekki láta fljótfærni í orðum koma þér í ógöngur, þú þarft ekki að segja allt sem að þú hugsar.

Þú þarft að taka áskorun og vera þolinmóðari við sjálfa þig. Þú ert að byggja grunn að mjög góðum mánuðum og ef grunnurinn er góður má leyfa sér ýmislegt.

Ef þú ert að hafa áhyggjur af sambandi þínu, gerðu þá það sama og þú gerðir þegar þú varst fyrst ástfangin.

Þú þarft að sýna traust til að aðrir treysta þér og þú þarft að sýna umhyggju til að fá umhyggju frá öðrum. Þetta er það sem verður við stjórnvölinn í lífi þínu svo taktu áskoruninni og treystu því að allt fari vel.

Mottó: Mér finnst svo gaman að lifa!

Frægir í Voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona, Hildur Sverrisdóttir varaborgarfulltrúi, Ragnhildur Gísladóttir tónlistarmaður, Solla Eiríks á Gló.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×